Velkomin :]
08.07.2007 12:06:41 / borga

Pása.............

 

 

Já sú gamla ætlar að taka sér pásu frá blogginu um tíma.:

Þið sem hafa lesið þetta blogg mitt , hafið þökk fyrir.

Bless bless og guð veri með ykkur

Sú gamla á Ránargötunni


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 08:25:05 / borga

16 stiga hiti í Hrísey

Heil og sæl.

Nú er klukkan að skríða yfir 8 þennan föstudagsmorgun og það er 16 stiga hiti hér í eyjunni.:o

Búið að fara með strákana á leikskólann og hana Möllu mús sem fékk að koma með Aroni heim af leikskólanum  í gær og hann átti að passa hana og sjá alveg um að henni leiddist nú ekki greyinu.

Malla Mús er tusku mús sem fær að fara heim með krökkunum og er sko búin að lenda í allskonar uppákomum, það sá ég þegar ég var að lesa bókina sem hún á og þar er skrifað niður allt sem hún gerir heima með krökkunum. Hún las t.d. moggann með okkur Aroni í gær og fékk að fara með okkur út í sandkassa og inn í tjaldið sem er hér í garðinum, það var svakalega gaman.

En kl 3,30 í dag fara Gunnar og Berglind í syglingu út í Flatey á Breiðafirði og þá verður amman heima með liðið og er meira að segja búin að panta að fá að hafa tvö önnur börn líka. Daníel og Thelmu systkyna börn Berglindar, þannig að það verður mikið fjör hjá þeirri gömlu í dag og kvöld. En þetta er nú stutt pössun því að þau koma heim hjónin aftur í nótt, en amman leyfir þeim nú að sofa út í fyrramálið er það ekki? fá smá pásu það er alveg nauðsinlegt svona annaðslagið.

En hef þetta ekki lengra að sinni

Hafið það gott

kveðja úr hríseyjunni

Linda 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 01:08:31 / borga

Amman í flug

 

Já ég ætla að skella mér  á norðurlandið  , nánar tiltekið út í Hrísey og eyða nokkrum dögum með  litlu ömmu dúllunum mínum, og  jú hann Gunnar minn og hana Berglindi mína . :o:o

 

 

Tilhlökkunin er alveg að fara með þá gömlu. :D

 Þetta er svipað og þegar maður var lítill og var að bíða eftir jólapökkunum. Það er ekki laust við að maður sé með fiðrildi flögrandi um í maganum. :lol::lol:

 

Það er svo gaman að vera með þessum litlu ömmu krúttum og maður verður að nýta hvern tíma sem maður getur til að vera með þeim. Þau stækka svo hratt það er alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur. Mér finnst svo stutt síðan við vorum öll á kanarí í febrúar og nú er júní að ljúka sitt skeið. 8)

 

Afinn á Ránargötunni fær ekki að fara með í þetta sinn, hann verðu heima ásamt restinni af heimilisfólkinu.

 

En alla vega þá er sú gamla að fara í ferðalag og ætlar sér að njóta þess í tætlur að vera með ömmubörnunum sínum.

 

 Hafið það nú gott  og guð veri með ykkur

Kv Linda


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 02:36:26 / borga

Spurning daddrra...............

 

 Jæja hvernig hafið þið það svo í dag?

Allir hressir og kátir og sáttir með sitt?

Kv

sú gamla


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 17:54:10 / borga

A tiny little pimple

 

I have a tiny little pimple on my cheek

It’s making me look a bit like a freak

In the middle there is a little hair

But honestly, I really do not care

Cause, it’s really simple

I only have a pimple

A tiny little pimple on my cheek

LG.       

Já, já ótrúlegt en satt, ég er með pínku litla bólu á kinninni.

Og jú ég veit hvað þið eruð að hugsa “ ha Linda með bólu ?” 8| jams en eins og sagt er

 “sjaldséðir hvítir hrafnar” Ég veit líka alveg ástæðuna fyrir þessari heimsókn á kinnina á mér.

Já vegna tannskemmda hef ég ekki verið nógu dugleg að borða nammi og þá sérstaklega súkkulaði og þá er voðinn vís. Það bregst ekki ef ég sleppi namminu þá fæ ég gest á andlitið. En sem betur fer þá stoppa þessir gestir yfirleitt mjög stutt við hjá mér. það er að segja hingað til þar sem ég hef nú getað hámað í mig nammið mitt í tíma og ótíma. Ég verð bara að læra að nota hægri helminginn af tönnunum við nammi átið á meðan að karíus og baktus eru að störfum vinstramegin.:lol::lol::lol:

 

En annars er allt við það sama á Ránargötunni. Sami grauturinn í sömu skálinni eins og hún amma mín var vön að segja.

 Já talandi um hana ömmu mína. Það er með ólíkingum hvað heimurinn er lítill , við vorum að fatta það hér á bænum að amma hennar Ingu hans Ingva var uppeldissystir pabba míns. Ótrúlegt en satt. Ég hef alla tíð litið á Völlu ( ömmu Ingu) sem systur pabba, og svo er barnabarnið hennar Völlu tengdadóttir mín. Svona er þetta allt eins og eftir bókinni eins og sagt er.

 En jæja hef þetta ekki lengra í þetta sinniðHafið það nú gott og verið góð við hvort annað.Kv LG 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 22:06:10 / borga

Anda inn anda út

 

 Sagan af heppnu stúlkunum sem fengu að hitta Friðrik Ómar.

 SMS samræður  kl 2

Laufey- ertu ennþá veik í bakinu

Linda- jams ligg bara vælandi

Laufey- ohhh æiiii það er nú ekki gott, humm  en hérna ég var að spá í með Friðrik Ómar, geturðu þá ekki farið með mig ?????

Linda- nei en ég er búin að tala við Dána og hann er meir en tilbúinn til að fara með þig ekkert mál, gerir allt fyrir litlu frænku sína.

Laufey- omg, omg, ogm,  í alvöru? þið eru the best

Linda- ekkert mál dúllan mín ég læt þig vita í kvöld

Laufey- takk takk ég elska þig alveg mestast.

SMS samræður  kl 3

Laufey- heyrðu er í lagi að Arnheiður komi með?, ég á nefnilega að sofa heima hjá henni því að pabbi hennar er að fara á ball.

Linda- já , já

Laufey- takk, takk ,ég elska þig svo mikið, alveg æðislega mikið

Linda- Ég líka þig.

SMS samræður kl 4.

Laufey - heyrðu í hverju á ég að vera? Á ég að vera í hvíta kjólnum eða buxum og bol ég er ekki viss því ég vil vera flott skilurðu

Linda- Laufey mín þú ert FLOTT þó svo að þú farir í strigapoka ekki hafa áhyggjur af því

Laufey- ok takk ég fer bara í buxum lovjú  

Linda fær ferlega slæmt leggjasig kast og verðu því að fara að leggja sig, en á meðan er smsað á milli Laufeyjar og Dána. Dáni reyndi eins og hann gat til að standa undir skriftum á gemsanum en þar sem fingurnir á kallinum eru ekki vel til séðir til að pikka á litla takka, þá gafst Laufey upp á sms sendingum og hringdi bara í frænda sinn.  

  Laufey- veistu hvenær við förum?

Dáni – nei Linda á eftir að tala við Friðrik

Laufey- ok en veistu hvað hún leggur sig lengi?

Dáni- neibb aldrei að vita þegar Linda er annarsvegar

 Laufey- ok viltu láta mig vita þegar hún vaknar?

Dáni- geri það elskan

Laufey- takk þú ert alveg lang best frændi minn sko!!!!1

Dáni- takk elskan ,sé þig í kvöld

Laufey-ok ekki gleyma að hringja í mig

Dáni- nei, nei ég gleymi því ekki 

Linda vaknar og fær frétti af því sem hefur gengið á milli kallsins og frænku hans. Hún geispar og reynir að koma sér betur fyrir í rúminu og teygir sig í gemsann sinn og sendir sms á Friðrik

Linda- hvenær byrjar ballið?

Friðrik- svona um 12

Linda - ég kemst ekki með Laufey en Dáni ætlar að fara með hana hvenær er best að hann komi?

Friðrik- láttu kallinn bara koma kl 11

Linda- takk en ég verð að fá fullt af myndum því ég á svo rosalega bágt ,

Friðrik- ég skal reyna að láta mína innri og yrti fegurð skína á nokkrar myndir fyrir þig

Linda- takk takk.. 

Sms píp kl 8

Laufey- ertu búin að tala við hann?

Linda –jams þið komið bara hingað kl 10 og Dáni fer með ykkur upp úr því.

Laufey- OMG. ég get ekki beðið ég er alveg að flippa

Linda- geymdu flippið þar til þú hittir Friðrik

Laufey-en ég er að pissa á mig af spenningi

Linda- farðu þá bara að pissa Laufey mín og muna svo að anda inn um nefið og út um munninn

Laufey- ok ég ætla að fara að pissa, OMG ég hlakka svo til !!!!!1

Dáni og Linda bíða inni í stofunni og horfa á þegar klukkan er að nálgast 10 og eina sekúndu áður en klukkan slær tíu slög er bankað á útidyrnar. 

Dáni- hey klukkan er ekki orðin 10

Laufey- víst mín er akkúrat 10 núna

Arnheiður- mín líka

Dáni- jæja dömur mínar þá er best að skella sér á ball

Laufey- ha? Ball ? fáum við að fara á ballið?

Arnheiður- úhúúhúúhúú, reynir að ná stjórn á andadrættinum en tekst ekki vel upp og byrjar að titra.

Linda- nei, nei þið farið ekki á ballið Dáni tók bara svona til orða, Arnheiður mín anda rétt, inn um nefið og út um munninn  Dáni leggur á stað með dömurnar og Linda ætlar sér að nóta þess að hafa sjónvarpið út af fyrir sig en auðvitað er akkúrat ekkert sem henni langar til að horfa á þegar tækifærið loksins gefst.   Linda setur upp illa grettu og ullar á sjónvarpið.     Dáni kemur heim með stúlkurnar.  Laufey hoppar og skoppar inn um dyrnar en Arnheiður skröltir inn og heldur sér í allt sem hún nær taki á.   Linda sér að hún verður að taka til sinna ráða og fer með stúlkurnar inn í borðstofuna. Hún tekur eftir því að fæturnir á Arnheiði hreyfast óeðlilega mikið, og segir stelpunni að setjast niður á einn stólinn.

Laufey- djísus , OMG,OMG,  vá ég trúi þessu ekki hann er æðislegur veistu hvað við máttum fara bakvið og horfa á hann syngja og sjáðu myndirnar........................

Linda hlustar á Laufey romsa út úr sér öllum lýsingarorðum sem til eru og gjóar augunum á hina stelpuna og  lýst ekki  á ástandið á Arnheiði og tekur leggur höndina á hné hennar til að gera tilraun til að stöðva skjálftann hjá stelpunni.

Linda- Arnheiður, ARNHEIÐUR MÍN er allt í lagi með þig.? Ekki gleyma að anda rétt. Horfðu á mig , inn um nefið og út um munninn.  Arnheiður reynir eftir bestu getu að horfa á andlitið á Lindu og einbeita sér að andadrættinum, á meðan er Laufey en að segja frá öllu um kvöldið með Friðriki.

“og þegar við vorum bakvið sviðið sko OMG hann var alltaf að horfa á okkur og svo sendi hann koss og allt”

Arnheiður er aðeins farin að jafna sig en Linda sér að það er engan veginn hægt að hafa krakkann skjálfandi svona á beinunum og tekur til sinna ráða.

“Arnheiður lokaðu hurðinni” hurðin er lokað

 “ok segir Linda nú eigið þið að hoppa og öskra eins og þið getið.”

“ha hopp ? ha Öskra?    Heyrist há báðum stúlkunum.

“jamm hopp, garga, öskra hreyfa hendur , hrista sig allan pakkann segi Linda og byrja að hreyfa hendurnar eins og asni.    Þær líta á hvor aðra og byrja svo að garga ,öskra ,og hoppa.

 Dáni kemur hlaupandi  í obboði inn  borðstofuna og spyr hvort allt sé nú í lagi með þetta lið þarna inni í herberginu eða hvort hann þurfi að kalla eftir sjúkrabíl.

“ jú ,jú bara smá útrás hérna í gangi segi Linda hin rólegasta og um leið og hurðin er lokað aftur er byrjað að garga og hoppa á ný og Lindu til mikillar ánægju sér hún að það er kominn eðlilegur litur í andlitið á Arnheiði og Laufey farin að sitja hin rólegast.  þegar eins mikil ró og hæg var komin á dömurnar þá loksins fékk Linda að heyra alla söguna frá því um kvöldið.  Og það fór ekki fram hjá neinum sem voru í 5 mílna radíus við húsið hvað gerðist fyrir utan ballstað og baksviðs  á dansleiknum í Bolungarvík sjómannadagskvöldið 2 Júní .

Þannig endar svo sagan um heppnu stúlkurnar sem fengu að hitta Friðrik Ómar .   

bæjó spæjó

kv Linda    


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 13:52:55 / borga

Föst í baki á bleiku laki

 

 Jam þannig er nú það gott fólk. Hér ligg ég eins og klessa.

Blessað bakið mótmælti mér hamaganginn við úttekt úr þurrkaranum og tók þá ákvörðun að fara í verkfall.

Samningaviðræður eru í fullum gangi, en ef ég ætla að reyna að svindla þá eru sendir út litlir verkalýðs verðir með tangir,klemmur og sverð og þeir eru ósparir á að nota sín vopn. En ég er nú ekki þekkt fyrir að gefast upp þannig að ég læt bara sem ekkert sé og ulla bara á þá á milli þess sem ég gnísti tönnum. Ég er nefnilega svo klár ljóska og lít bara á þetta sem frí. Ég er að þykjast vera á sólarströnd liggjandi á sólarbekk klæddum bleiku handklæði, alein á eyðieyju í miðjarðarhafi. Og það besta við þetta allt er að nú get ég sagt 

“ jú ,jú ég get alveg legið í sólbaði , það er ekkert mál “ 

En annars af Ránargötunni er allt bara gott að frétta. Maður saknar litlu krílanna, ekki get ég neitað því, allir fóru til síns heima á þriðjudaginn. Hilmar suður og Gunnar með allt sitt lið norður. Svo eru Ingvi og Inga að keyra suður núna þannig að nú erum við bara þrjú í kotinu.

En við amman og afinn fáum Alexöndru og Aron í byrjun júlí til Flateyrar og þá verður gaman. Liggjandi hér á sólarströndinni er ég búin að vera að hugsa um það sem við komum til með að gera þegar þau koma. Það er svo yndislegt að vakna við “ amma..........”

En nú eru litlu verðirnir eitthvað að derra sig þannig að ég ætla að hætta þessu núna og fara að ulla á oggu litla aumkunarverða verkalýðsverði sem eru að veifa framan í mig einhverjum reglugerðum sem þeir segja mig vera að brjóta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 02:30:55 / borga

Litlar fætur hlaupa um á Ránargötunni.

 

 

Já amman er búin a fá litlu píslin sín vestur. Og mikið rosalega var gott að fá þau í fangið og geta knúsað og kysst.

Og nú er búið að breyta svefnherberginu í einskonar vöggustofu því að þar er búið að koma fyrir tveimur barnarúmu eitt fyrir Aron og Annað fyrir Adrian og svo sefur Alexandra uppí hjá afa og ömmu.

Það var líka settur upp gestabeddi fyrir Auði til að sofa á líka inni í svefnherberginu. Hún var svo góða að eftirláta bróður sínum og Berglindi sitt herbergi svo að þau gætu nú fengið smá frí. Svo kemur Hilmar á sunnudaginn. Ég er búin að finna svo mikið fyrir því hvað ég sakna þess að hafa hann ekki líka hérna í kvöld. Ég var að hugsa um að það eru svo fáar stundi sem við erum öll fjölskyldan saman. Síðast þá var það í september þegar Gunnar og Berglind giftu sig og þá var það líka í svo stuttan tíma sem við vorum öll saman. En þó svo að stundirnar séu  fáar þá er það sem skiptir máli að nýta þær vel og njóta þess að vera saman. Ég get ekki annað sagt en að Guð hafi verið mér góður. Ég get ekki kvartað það eru ekki það lánsamir að eiga samheldna og ástkæra fjölskyldu. 

 

Raggi og Þórunn og Stefán Páll komu keyrandi í gær vestur ásamt Kristján Atla og Lilju konu hans.

Ingibjörg sem er búin að vera hjá veikri mömmu sinni fyrir norðan á Akureyri komst líka heim í gær og var með Kristínu birnu litlu Hjartardóttur með í för .

Það er búið að vera æðislegt að hafa Kristján Atla og Lilju konu hans hér í dag,ogmí kvöld. og svo þegar við Dáni komum heim úr verslunar ferð frá ísafirði seinnipartinn þá var gaman að koma heim og finna þar Þórunni hallandi sér í stólnum inni í stofu. Búin að fá sér kaffi og gat slappað af ein á meðan að allt liðið var að heiman. Mummi og Begga komu einni í dag og eins Jana og Birgir.

 

Jæja hef þetta ekki lengra að sinni best að far inn og kúra hjá píslunum mínum. Það verður mikið að gera í fyrramálið þegar liðið vaknar þá er ekki slegið slöku við.

 Hafið það nú gott og látið ykkur líða vel.   

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:34:10 / borga

Styttist í að flölskyldan verði öll saman

 

 

Jæja það er orði ansi langt síðan ég bloggaði síðast en betra seint en aldrei.

 

 

Jú vikan er búin að vera viðburðarík ekki hægt að deila um það. Ég vil nú byrja á því að þakka Kambi að hafa þó öll þessi ár geta verið með rekstur hér á Flateyri. það hefur þurft mikinn dugnað, þrotlausavinnu og áræði. En Svo bresta krosstré sem og önnur tré.  Að mínu áliti þá sýnir það mikla skinsemi að gera sér grein fyrir því og viðurkenna að það er farið að bresta og sýna þá ábyrgð að hætta áður en að brotinu kemur.

 

En það líður að fermingunni hennar Laufeyjar skottunnar minnar. Skrítið að hugsa til þess að litla skottan er ekkert lítil lengur.

 

 Ég fæ allt liðið mitt vestur um helgina þó dvölin þeirra verið stutt þá koma þau alla vega. Ég fæ aðeins að hafa Hilmar minn í einn sólahring en hann er búinn að lofa að bæta mömmu sinni það upp og koma fljótlega aftur og vera þá lengur. Berglind ætlaði að koma í dag með Aron Steinar og Adrian Smára en okkur leist ekki á færðina og spáin ekki góð þannig að þau koma bara öll fjölskyldan á föstudag. Þau verða aðeins lengur en Hilmar, þau fara aftur á þriðjudaginn. En það er bara að nýta tímann sem við höfum saman vel og vandlega og ég er búin að fá Hilmar Örn til að taka fjölskyldumyndir á sunnudagskvöldið þannig að það verður nú gaman, gaman. Þau verða bara öll að sætta sig við að og láta það eftir mynda vitlausri mömmu gömlu að láta smella nokkrum myndum af þeim.til hvers er að eiga myndavélar ef það á ekki að nota þær og öll þessi skemmtilegu augnablik og atvik sem koma , fyrir mig er það algjör nauðsin að eiga myndir og geta skoðað þær og rifjað upp góðar minningar.  

 

Jæja hef þetta nú ekki lengra að þessu sinni.

Hafið það nú gott.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 10:10:13 / borga

Villi litli/stóri frændi farinn :(

 

 

Jæja þá er þessi stutta heimsókn hans Villa míns á enda.

 

 

 

Ég fór með hann á flugvöllinn áðan og við vorum ekkert að flýta okkur á leiðinn því að vélin átti ekki að fara fyrr en 9-55 svo við dóluðum okkur bara og vorum að ræða saman eins og gengur og gerist nema hvað að þegar við komum á völlinn kl 9-30 þá er vélin barasta komin á völlinn og tilbúin til brottfarar. Þá var víst lesið aðeins vitlaust á miðann ,8| brottför var sem sagt 9-35 en ekki 9-55.

 

En þetta reddaðist nú allt , það var bara hlaupið með pokann hans út í vélina og kallað um borð.

 

Ég var að hugsa um það á leiðinni heim hvað það er alltaf leiðinlegt þegar einhver er að fara, þegar maður er að kveðja. En það þýðir ekki að vera með eigingirni , það er ekki alltaf hægt að fá allt sem maður vill.  Það er bara búið að vera gott að fá að hafa hann þó að stutt hafi verið, hann er búinn að slappa af hjá okkur og það er nú fyrir öllu .

 

Hann fékk sér göngutúr drengurinn eina nóttina. Fór alla leið út á Klofning, hann varð að fara á þann heillastaður áður en færi væri heim í borgina aftur.

 

 

 

Jæja hef þetta ekki lengra að sinni. Hafið það nú bara gott.

Kv

Linda

   


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 01:12:38 / borga

Fjölgun um einn

 

Já ég fór og náði í hann Villa litla/stóra frænda minn á flugvöllinn í dag.:)

 Greyið fékk alveg áfall rétt fyrir lendingu á ísafirði því að hann mundi allt í einu eftir því hvernig ég var þegar ég náði í hann á flugvöllinn síðast þegar hann kom. Þá var ég nefnilega búin að útbúa stórt trúðaandlit úr pappa og festa svo á spýtu og þegar guttinn labbaði út úr vélinni þá stóð ég við glerdyrnar með spjaldið fyrir framan mig. Það var mikið glápt á mig og sumir hleyptu fram brosi á meðan að aðrir fussuðu og sýndu augsjáanlega hneykslun á þessu uppátæki mínu.

Auður var með mér en við getum orðað það þannig að þó hún hafi verið með mér þá þekkti hún mig samt ekki. 8)Þegar ég var búin að fá koss frá frændanum þá kom bara

 “ taskan mín er svört , komdu Auður út í bíl, núna”

og þar með voru frændsystkinin þotin á meðan ég stóð með trúðaspjaldið og varð að finna svörtu töskuna hans frænda míns og auðvitað þá voru allar töskur þennan daginn svartar.

En ég var öllu settlegri í dag þegar hann kom. Bara með stírurnar í augunum, hárið út um allt, í peysunni öfugri og með brotna framtönn. Ferlega falleg frænka að ná í frænda sinn. Ég held að af tvennu illu þá hafi hann nú frekar viljað hafa mig svona heldur en með spjaldið góða fyrir framan mig.

 Hann er búinn að tilkinna mér það að ég nái ekki að troða andlitinu á honum og mér í nælonsokkabuxur og taka myndir eins og gert var í síðustu heimsókn, eða farið í krónu rassaleikinn. þið megið reyna að geta upp á þessum leik, geðveikt skemmtilegur leikur sem hún Ella Bára mín kenndi okkur. En ég á nú eftir að sjá hvað hann gefur eftir strákurinn, ég er nú strax búin að fá að taka af honum myndir og hann sem LEYFIR aldrei nokkurn tíman myndatökur.

 

En jæja þá eru kosningarnar búnar sem betur fer,:P ég er svo gjörsamlega ópólitísk að það hálfa væri alveg hellingur. Og það finnst mér alveg hið besta mál því það eru alveg nóg af fólki sem er með þetta element í sér að fylgjast með og hafa áhuga á pólitík. Það verður líka að vera jafnvægi í þessu eins og öllu öðru ekki satt. En ef maður fer nú að spá í það þá eru það nú nokkuð mörg element sem vantar í mig, finnst leiðinlegt að liggja í sólbaði, hata það að þurfa að fara í búðir og versla föt, stafsetningar, nn kk,rr y-lon hvað.......... á mitt andlit hefur verið tvisvar sinnum settur andlitsmaski, nota ekki dagkrem, kvöldkrem né næturkrem, vá þegar ég sé þetta svona svart á hvítu þá skil ég hvað Hilmar Auður og Inga eru alltaf að tala um. :^)

 

En jæja hafið það nú gott elskurnar mínar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 02:13:43 / borga

Sá hlær best sem síðast hlær.....

 

 

 

Ekki komst hann Eiríkur áfram í júró dótinu og vil ég bara segja að því tilefni.

Sá hlær best sem síðast hlær :lol::lol: svo Friðrik minn þú mátt sko skelli hlæja núna og segja hátt og skírt TOLD YOU SO og hana nú og allar hænurnar með líka.

 

 

Við mæðgurnar fórum á ísó í dag. Það var farið á sjúkrahúsið fyrst til hægri við innkomu og þar var Auði skellt í sól og dregnar upp nálar. :( Jams mín var sett í blóðprufu, sem sagt nál stungið á bóla kaf inn í æð og soga þaðan rauðum og hvítum blóðkornum sem settar verða svo í rannsóknir. Hún er svolítið lík pabba sínum að því leiti að nálastungur eru ekki á listanum svo kallaða

 “ það sem mér finnst skemmtilegast að gera “  

En hún var nú ekkert að láta það draga sig niður þó svo það hafi verið dregið úr henni blóðið. Nei ,nei á eftir blóðsogið var ætlunin að kíkja á hana Helgu frænku og allt hennar lið en þar komum við að tómum kofanum svo það var bara haldið inn í bæinn aftur og farið í bakaríið og verslað.

Þar næst fékk ég kennslu í að RÚNTA á ísó. Það er víst alveg spes háttarlag á þeirri kúnst og skilst mér að ég hafi kol fallið í því prófi. Jæja hvað um það ég er jú ljóska ekki satt.:$

 

En síðar var haldið aftur upp á sjúkrahús á ný og nú var beygjan tekin til vinstri við innkomu, til að hitta hann Viðar tannlækni, og það er miklu frekar á listanum góða hjá henni Auði.:o 

 

 þar hittum við faðir með unga syni sína, sem við náttúrulega kolféllum fyrir og sá eldri var farinn að kalla mig “amma” og þið sem þekkið mig getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var montin. Það lá við að ég segði við pabbann

“ hey sjáðu það er randafluga þarna “ og á meðan að hann væri að líta við til að sjá fluguna þá væri ég þotin út með guttana og komin hálfa leiðina heim. En ekki var nú raunin sú, ég verð að taka það út á öllum börnum sem ég sé þar sem mín litlu písl eru á norðurlandi.:cry:

 En eftir ánægjulega heimsókn hjá tannsanum þá var bara skellt sér í rörið og heim.

Og þannig endaði sagan sú.

Hafið það nú gott elskurnar

Kv

Linda        


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 23:02:44 / borga

Samræmduprófin og súpa

 

 

Jæja þá er Auður búin með samræmdu prófin:lol::lol:  og mikill léttir á bænum að vera kominn yfir þann hjalla.:o

Svo var búið að plana smá óvæntu uppákomu fyrir krakkana . þau voru farin að spyrja um allskonar hluti hvort það ætti að koma flugvél að ná í þau eða bara jafnvel þyrla það væri cool sagði ein þeirra en þau  fengu nú ekki flugvél né þyrlu en þau fengu Bílfar . Það var farið í hádegis mat heim til Helgu, þar reiddi mamma hennar fram þessa líka rosaflotta súpu og brauð og var tekið vel til matarins . þá var haldið í smá göngu ferð og upp að útsýnispalli og þaðan niður í sjoppuna og fengið kók og prins. Þar kom svo rúta. Já öllum var skellt inn í rútu og farið í góðan bíltúr, farið inn í Arnarfjörð og að Dynjanda. Þar var svo tekið fram nesti. Síðan var haldið heim á leið og endað í sundlauginni þar sem var farið í sund og heita pottinn og síðan grillaðar pulsur. Allir sælir og ánægðir með góðan dag. Ég verð nú að þakka G -unum 4  :D

Gumba, Gunnu, Guðbjarti og Guðmundu, að sjá um þetta allt af þvílíkri natni og list. Þau sáu um allt saman og stóðu sig eins og hetjur á meðan ég fékk að sleppa við allt vegna slappleika. En ég drattaðist nú upp í sundlaug og var með þeim þar uns Auður rak mig heim með orðunum” sko mamma maður fer ekki út þegar maður var með hita daginn áður og nú ferð þú sko heim og undir sæng” þannig að auðvitað hlýddi  ég stelpunni og fór heim og undir sæng.8|

 

En Ingvi og Inga eru nú út í Hrísey og mikið öfunda ég þau af því. Ég væri alveg til í að vera þar hjá þeim ,en Gunnar kemur nú með fjölskylduna sína á hvítasunnunni og þá kemur líka Hilmar þannig að þá verður gaman ég er eigin lega farin að telja klukkutímana þar til að fá allt liðið mitt heim.

En hef þetta ekki lengra.

Og p.s. Laufey mín ef þú ert búin að fá í hægra eyrað og nú í það vinstra að þá ertu líka búin að fá í bæði eyrun og þar sem þú ert bara með tvö eins og við öll að þá er þetta að vera búið ekki satt dúllan mín. :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 01:11:19 / borga

ælufóbía og Gosi í vandræðum

 

 

Já það verður létt og laggott í dag skal  ég segja ykkur.

Jamms mín bara búin að vera í því að taka til og næla sér svo í smá ælupest.:evil:

 Eða réttara sagt þá reyndi pestin að næla í mig. En þar sem ég er svarinn óvinur ælunnar þá fékk hún ekki að ráða nú frekar en fyrri daginn. Það er sko öllum brögðum beitt til að halda ælunni niðri þetta, og kallast víst ælufóbía að mér er sagt.:(  Ég get aðstoðað aðra í þessu ástandi og það er ekkert mál , en að ég þurfi að fá einhverjar gusur út úr munninum og hvað þá nefinu þá segi ég stopp. No way hósey not on my watch.:klikk::klikk::klikk:

 

 Svo nú verður bara skelltur inn einn brandari um hann Gosa sem átti í smá vandræðum.

 

Þannig var að Gosi kynntist konu og var himinlifandi með að vera komin í tölu vina sinna sem allir áttu konur. Er leið á sambandið þá fór konan að kvarta við Gosa

“ æ á þessar flísar eru alveg að gera út af við mig Gosi ég er búin að eyðileggja 3o flísatangir , tvær túpur af sóttvarnarkremi og plástrarnir eru búnir í búðinni, þú verður bara að gera eitthvað í málinu Gosi minn ef þetta á að ganga hjá okkur”.

Svo Gosi fer til læknis og segir honum alla sólar söguna og er mjög langt niðri og sár því hann var jú nú fyrst að kynnast því að deila rúmi með konu.

“Elsku kallinn minn Segir læknirinn þetta er akkúrat ekki nokkurt vandamál. Farðu bara í Húsasmiðjuna og keyptu þér fínan sandpappír og pússaðu vininn, ég garentía að hún á eftir að vera hæstánægð með þetta”

Gosi fer að ráðum læknisins og kaupir sér sandpappír.

Nokkru síða hittast þeir á götu úti og læknirinn kastar á hann kveðju.

“ jæja Gosi minn er svo ekki allt í himnalagi hjá þér?”

“ jú takka allt er alveg frábært skal ég segja þér” svarar Gosi með bros á vör.ég gerði það sem þú ráðlagðir og mér líður mikið betur”

“ það er nú gott segir læknirinn og spyr svo “ og konan er hún ánægð og hætt að kvarta?”

“já já hún er löngu hætt að kvarta í mér ég lét hana nefnilega bara róa mér líkaði mikið betur við sandpappírinn.”   

 

Jæja vona að dagurinn verði góður hjá ykkur öllum

Kv Linda


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 01:56:10 / borga

Ósátt við dómara...................

 

Ég veit ekki með ykkur en ég er ekki hress með útkomuna á bardaganum Mayweather vs De La Hoya. :evil:

 

 

Að mínu mati þá tók De La Hoya, Mayweather og smurði honum á brauð og skellti osti og skinku , pítusósu og káli á og át hann. Og smjattaði vel á eftir :frown:

en ekki voru þessir dómarar sammála mér þar og reyndar ekki i fyrsta sinn sem ég er ekki hress með þeirra úrskurð. :frown:

 

 

 Oscar átti bardagann og gaf ekkert eftir, sótti allan tíman og Floyd var í vörn mest allan bardagann . og þegar að hann kom inn höggum þá lentu þau iðulega á hönskunum hjá Oscari. Það kemur líka fram á HBO  að það voru flest allir ósáttir við þessa niðurstöðu. Og það er látið að því liggja að það verði annar bardagi á milli þeirra.:P

 

 En það þýðir ekki að súta það eða hvað ? það væri nú leiðinlegur heimur ef allir hefðu sömu skoðanir og sama  smekk.

 

  Annars er bara helgin búin að vera góð. Auður er búin að vera með nefið ofan í bókum alla helgina og í kvöld þurfti ég að beita mínum töfrum og sannfæringar krafti til að fá hana til að koma með mér á rúntinn á ísó og þar fengum við okkur ís og rúntuðum smá . það er alveg nauðsinlegt að gefa lærdóminum aðeins frí.:D:D:D:D

Ég var að lesa bloggið hennar Laufeyjar Drafnar :D og vá hvað það er skrítið hvað hún er orðin þroskuð. Og falleg hefur hún alltaf verið en hún er orðin hreint út sagt gouergus líka. Sú á sko eftir að rúlla gaurunum upp í runu á eftir sér það er alveg á hreinum.:P Maður gerir sér bara ekki grein fyrir því hvað tíminn flýgur hratt frá manni.

 En þetta verðu ekki lengra í dag

Hafið það nú gott Linda   


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
RSS tengill